Mælasnúrur:
Mælasnúrur sem við höldum á lager eru 16 og 32amper í lengdum 1m að mæli og 24m að tengimúffu í bát. Aðrar gerðir svo sem 32amp 3ja fasa getum við afgreitt með 1 - 2ja vikna fyrirvara. Litur á köplum er blár í efni sem sniðið er fyrir hafnir.
Tenglastópar:
Þjónustuaðili okkar fyrir tenglastólpa og mælasnúrur er ROLEC Services á Englandi www.rolecserv.com en Rolec er sérhæft fyrirtæki með vörur og þjónustu fyrir hafnir. Tenglastólpana er hægt að fá í mörgum gerðum en vinsælastir eru 750mm háir með 9w toppljósi og 6 læsanlegum tenglum, öryggjum og lekaliðum. Í flestum tilvikum afgreiðum við heithúðað- eða ryðfrítt (seltuvarið) stál en hægt er að fá "FOAMEX" hlífar sem eru kulda- og seltuvarið plastefni.
Við leggjum áherslu á öryggisþáttinn við tengingu til þeirra sem nýta þjónustu innan hafna einkum með í huga að allt að 6 bátar eru tengdir við hvern stólpa og misjafn frágangur í bátum. Best er að hver og einn tengill slái út við útleiðslu en talsverður verðmunur er ef 2 tenglar eru á hafðir á einum og sama lekaliða.
Dæmi um búnað: 750mm heithúðaður tenglastólpi með þéttleika IP65 úbúinn með:
6 x 16amp IP44 tenglum
6 x 16amp (ABB) Sjálfvör
2 x 63amp 30 milliamp (ABB) lekaliðar
2 x Rofar/Innsláttur á lekaliða
1 x PL9 sjálfvirkt 9w toppljós
Á síðustu 2 árum hafa margar hafnir óskað eftir innbyggðum mælum og læsanlegum tenglum. Verð á „micro“ mælu hefur lækkað verulega og því hagnaður að hverfa frá mælasnúrum.