Vantar þig flotbryggjur eða sérhæfðan búnað til hafna?

Hafðu samband

Köfunarþjónustan kaupir KrÓla

Köfunarþjónustan ehf. gekk frá kaupum á KrÓla, sem var í eigu Kristjáns Óla Hjaltasonar, í byrjun marsmánaðar 2021 ásamt öllum lager fyrirtækisins. Með kaupunum stefnir Köfunarþjónustan á að víkka út þjónustu við hafnir landsins sem m.a. sé að finna í vörumerkjum KrÓla, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Kristján Óli Hjaltason, eigandi KrÓla, hefur í fjóra áratugi sérhæft sig í þjónustu við hafnir landsins með flotbryggjum o.fl.  Auk flotbryggja, öryggisbúnaðar og öldubrjóta selur félagið ýmsan búnað tengdan höfnum svo sem fingur til viðlegu við flotbryggjur, tenglastólpa fyrir lýsingu og landtenginu báta, fenderlista til að verja báta, landganga ásamt öllum búnaði sem þarf til uppsetninga of þjónustu á flotbryggjum.

„Við höfum lengi haft augastað á KrÓla, vörurnar sem þeir bjóða eru þær bestu á markaðnum. Viðskiptavinir KrÓla eiga ekki að finna fyrir neinum óþægindum af þessum breytingum. Við tökum við öllum skuldbindingum fyrirtækisins gagnvart viðskiptavinum þeirra og höldum áfram að veita þá framúrskarandi þjónustu sem félagið er þekkt fyrir,“ er haft eftir Helga Hinrikssyni framkvæmdastjóri Köfunarþjónustunnar.

Köfunarþjónustan er rótgróið fyrirtæki á sviði köfunar og hefur áralanga reynslu í ýmis konar viðhalds- og viðgerðarþjónustu við hafnir. Má þar nefna viðgerðir á bryggjuþiljum, uppsetningu flotbryggja og viðhald þeirra. Ásamt því að sinna öllum almennum köfunarverkefnum.

Flotbryggjur og öldubrjótar

Síða SF Marina

Flotbryggjur okkar eru framleiddar hjá SF Marina AB í Svíþjóð sem er, á heimsvísu, leiðandi í hönnun á steinsteyptum einingum úr járnbentri steinsteypu með flotkjarna úr plasti. Lengdir eru 10, 12, 15 og 20 m og breiddir 2.4, 3, 4 og 5 m. Val eininga fer eftir fyrirhugaðri nýtinu ásamt áætluðu álagi vegna öldu eða annara þátta svo sem kröfum um þjónustu. Tenging milli eininga eru vírar og gúmídemparar sem falla í gróp á enda einingana. Hefðbundinn uppsetning er með keðjum eða SEAFLEX (sjá sér kafla) við botnfestur ásamt staurastýringum í nokkurm tilvikum. Í/á einingar má byggja hús eða þjónustukjarna t.d. olíudælur eða annað sem kröfur eru um í nútíma höfnum

Myndir frá DOMSÖ, norðan við Gautaborg í Svíþjóð. Flotbryggjur eru byggðar fyrir stór skip þar sem traustrar viðlegu er krafist. Einingar eru 5m breiðar og 1.8m á hæð með fríborð um 0.5m – 0.7m. Bent er á innbyggða stuðara til að taka á móti álagi sem er ofan við fríborð eininga. Bryggjuni er lagt út með 50mm keðjum og 10 tonna botfestum að hluta lagt út í röð til að treysta festu.

Myndir til samanburðar, flotbryggjur sem við höfum sett hvað mest upp undanfarin 20 ár. Til vinstri er ný flotbryggja (2020) á Bakkafirði 20 x 3m. Landstöpull eru forsteyptar KrÓla-einingar sem raðað er upp á staðum og bundnar með steypu. Landgangur er 1.5 x 8m. Einnig er bent á 115mm PARMA kantlista sem eru settir upp á flestar nýjar einingar. Mynd til hægri er frá Djúpavogi (2016) 3ja m breið með 1.5 x 8m landgang og öryggisstigum.

Öldubrjótar

Öldubrjótar eru stærri gerðir eininga oft með kjöl með báðum langhliðum. Suðurbugt í Reykjavíkurhöfn er varin með öldubrjót frá SF Marina sem var fyrst settur var upp árið 1992 en Suðurbugt er miðstöð fyrir hvala- og fuglaskoðun svo og ýmsa ferðatengda þjónustu. Stærð öldubrjóta eru almennt 20M á lengd með breytilegar hæðir og þyngdir. Í ár (2020) var öldubrjóturinn við Suðurbugt endurnýjaður með 5m einingum og heildarlengd sem fyrr 80m.

Við getum boðið viðskiptavinum að reikna stærðir öldubrjóta í töflureikni sem SF Marina hefur hannað í samstarfi við sérfræðinga í öldumælingum en við skoðun þurfa að liggja fyrir tölur um vind, dýpi og vindfang að væntanlegum öldubrjót svo og áfallshorn öldu.

Mynd að neðan er úr Suðurbugt hvar sjá má út út hafnarmynninu til NA í átt til Viðeyjar. Bein vindlína er rétt um 4.8km sem veldur rismiklli öldu þegar vindur er 25-35m/sek utan hafnarinnar og 15-22m/sek innan hafnargarðsins með uþb. 60° áfallshorni á öldubrjótinn. Við endurnýjun í ár (2020) var „gamli öldubrjóturinn“ sleginn í tvo hluta 2 x 40m og settur sem viðlega til þjónustu fyrir starfsemina í Suðurbugt. Við, hjá KrÓla, teljum að vel hafi til tekist og enn batnar aðstaða fyrir harðbotnabáta, á komandi vori, með uppsetningu 12m fingra sem eru með 30° stefnu frá flotbryggju.

Á neðri mynd er öldubrjótur í Sauðárkrókshöfn 3 x 80m en á hann voru (2016) settir steyptir 1.2 x 12m fingur sem viðlega fyrir stærri dagróðrarbáta.

Fingur við flotbryggjur

Við flestar flotbryggjur sem KrÓli ehf hefur sett upp eru fingur sem marka bása fyrir hvern bát. Fyrstu fingur voru settir upp á Stöðvarfirði og Bíldudal fyrir uþb. 40 árum en þeir voru með burðargrind 60x40x3,5mm.  Í flestum seinni afgreiðslum er burðargrind 100x80x4mm.  Oftast eru fingur með timburdekki en í nokkrum tilvikum með heithúðu neti.

Öllu jafnan er reikað með að lengd fingurs sé  75-80% af lengd báts og jafnframt er þess vænst að burður leyfi meðalmanni að ganga út á enda fingurs. Stærð fingra er oftast 6 og/eða 8m en lengri og burðarmeiri fingur eru falir.

BURÐARMIKLIR STEINSTEYPTIR FINGUR.

Undanfarin ár hefur orðið mikil breyting á dagróðrarbátum sem hafa stækkað að mun en mesta breytingin er að öll vinnuaðstaða er lokuð. Þessi nýja gerð báta gerir auknar kröfur til aðstöðu í höfnum þar sem næsta ómögulegt að leggja bátum „utan á hvorn annan“ til að nýta viðlegu.

Við hjá KrÓla ehf vekjum athygli á sterkum steinsteyptum fingrum sem henta vel fyrir þessa gerð báta þar sem þeim er lagt með stefni eða skut að viðlegukanti en við það verður nýting flotbryggja mun betri. Hönnun okkar byggist á því að c/c á milli fingra sé uþb 10m sem þýðir að við hefðbundnar 20m flotbryggju er hægt að koma fyrir 8 bátum í stað 2 – 4 þegar lagst er með síðu að viðlegukanti.

EURODOCK flotbryggjur

Eurodock – einingar: Burðargrind EuroDock er sterkur, heithúðaður stálrammi með timburklædd dekki annað hvort úr gagnvarinni furu eða harðvið (KIRAI). Val er á flotum úr steinsteypu eða plasti. „C“ – prófíll 180x120x4mm er á báðum langhliðum til að festa annað hvort kantlista, stagfestur eða fingur milli báta. Grunneiningar eru í 4m lengdum 2,4 eða 3.0m breiddum en val er um 6m lengdir í sömu breiddum. Á milli eininga er val um mjúk eða stíf samtengi til að taka á móti ölduhreyfingu.

EuroDock Olíuafgreiðsla á Djúpavogi

EuroDoc einingar. 2 stk 3 x 4m.

Parma fenderlistar

Parma ferderlistar eru framleiddir úr „Thermoplastic Polyurethen (TPU)“ sem er mjög teygjanlegt, sterkt og kuldaþolið efni. Framleiðandi er PARMA Plast A/S í Noregi en að ráði PARMA völdum við svartan lit þótt grár falli öllu betur að stáli og timbri. Ástæðan er þol svarta efnisins mót útfjólubláum lit sólarljóss en PARMA hefur fullvissað okkur að enginn litur gangi úr efninu og liti byrðing báta.
Stærðir sem við höldum á lager eru: Ø75 og Ø115mm. Ø75mm listarnir henta vel á fingur (putta) milli báta en Ø115mm fellur vel að kantlistum á flotbryggjum sem eru öllu jöfnu 140mm á hæð.

Fjallabyggð / Ólafsfjörður 115mm PARMA fenderlistar á báðum hliðum

Rolec tenglastólpar

Þjónustuaðili okkar fyrir tenglastólpa er Rolec Services á Englandi: Rolec er sérhæft fyrirtæki með vörur og þjónustu fyrir hafnir. Tenglastólparnir eru af mörgum gerðum en við höfum að mestu selt „CASSIC“ stólpa með 16- og/eða 32amp (bæði ein- og þriggja fasa) tenglum. Tenglar eru læsanlegir með öryggi, lekaliða sem grunnfrágang. Einnig má fá stólpana með orkumælum „kwH“ en undanfarin ár hafa flestir stólpa verið afgreiddir með mælum. Ytra birgði er almennt úr hethúðuðu stáli en ryðfrítt seltuvarið stál er einnig fánanlegt.

Bryggjur á vötn

Síða CanadaDocks

Bryggjur frá CanadaDocks eru modulbyggðar. Einingar eru 1.25 x 2.5m afgreiddar sem heild með stólpum, samtengjum og dekki allt eftir óskum. Uppsetning er auðveld enda fylgja góðar leiðbeiningar. Lengd á stólpum er miðuð við dýpt við bakka.

Aukahlutir eru falir svo sem;
krækjur fyrir botnfestur,
samtengi fyrir landganga,
stigar,
kantlistar,
stuðningsstólpar vegna viðlegu báta,
(sólardrifin)ljós,
pollar ofl.

10m bryggja við Þingvallavatn 2020

Við Skorradalsvatn 2019/2020

CanadianPond

Canadianpond framleiða Bubble Curtain, eða loftbólugirðingar hafa verið að koma virkilega vel út og koma að góðum notum í við ýmsar aðstæður.

Fiskeldi

Besta leiðin til að takmarka hreyfingu þörunga, svifs og marglyttu er að nota Bubble Tubing® loftbólugirðingar. Loftbólugirðing getur komið að góðum notum til við að sigrast á erfiðleikum í fiskeldi þar sem átt er við eitraða þörunga, eitrað svif eða jafnvel marglitur sem getur haft áhrif á lax eða aðrar tegundir í sjávarumhverfi.

Mengunarslys

Loftbólugirðingar geta komið að góðum notum til að hafa stjórn á olíumengun.

Loftbólugardínur geta virkað sem veggur ef olíumengunarslys verður í flatvatnsaðstöðu eins og smábátahöfnum eða höfnum yfirhöfuð.

SEAFLEX – Viðlegukerfi

SEAFLEX eru taugar úr gúmí með ofnum kjarna en hönnun SEAFLEX má rekja til árisins 1985.
SEAFLEX hefur reynst afbragðs vel til festu á flotbryggjum og baujum. Hver þráður er að þvermáli 25mm og hefur þá eiginleika að þola allt að 100% teygju án þess að tapa styrk. Togþol hvers SEAFLEX þráðar er uþb 1000 kg en þráðum er fjölgað til samræmis við álagskröfur hverju sinni.
Fyrstu flotbryggjur á Íslandi með SEAFLEX voru settar upp í Grindavíkurhöfn í janúar árið 2000 en nokkrum dögum eftir að uppsetningu skall á aftaka verður með miklu álagi á allan búnað. Talið er að flotbryggjurnar hafi lyfst uþb 1.8m yfir “hæsta sjó” en meðal báta sem voru við bryggju var björgunarskip Þorbjörns í Grindavík. Ekkert tjón varð á flotbryggjum eða bátum, þrátt fyrir talsvert tjón á öðrum bryggjum búnaði, en telja má að gildi SEAFLEX hafi þar komið í ljós. Aðrar hafnir með SEFLEX eru t.d. Olíubryggja í höfninni við Helguvík, nýjar flotbryggjur Snarfara við Elliðavog, Olíubryggja Olís í Hafnarfjarðarhöfn, Kirkjubryggjan á Skansinum í Vestmannaeyjum, flotbryggjur og öldubrjóur í Akraneshöfn, Norðurbugt og öldubrjótur í Reykjavíkurhöfn ásamt nýlegri höfn á Sauðárkrok. Nýjung á SEAFEX er „ByPass“ búnaður – sjá hreyfimynd – hindrar að teygja verði og mikil.

Landgangur

KrÓli hannaði og framleiddi 12m langan landgang sem uppfyllir allar öryggiskröfur og auðveldar aðgengi fatlaðra út á flotbryggjur.  Landgangurinn er DNV-GL vottaður.

ÖRYGGISSTIGAR

Árið 2001 var hannaður á okkar vegum öryggisstigi til festingar á kantlista flotbryggja frá SF Marina AB. Áður en framleiðsla hófst var stiginn kynntur fyrir Siglingastofnun Íslands sem gaf jákvæð ummæli um stigan sem öryggistæki. Sérstakar reglur eru um merkingum og staðsetningu á örygisstigum en merki skulu vera í „orange“ sem næst RAL3025 sem er „gló“ litur sem er greinilegt auðkenni. Að auki er merki sem vekur athygli allra sem um flotbryggjurnar fara en bæði merkið STIGI og handfang er nylonhúðað í RAL3024 litnum en með því teljum við að farið sé að öllu leyti eftir gildandi reglum.

HLIÐ

Bjóðum upp á læst hlið sem nota má til að stýra aðgengi að flotbryggjum.

Vottaðir af eftirtöldum flokkunarfélögum

Fagmennska í fyrirrúmi

Hafðu samband í dag

Við er með vakt allan sólarhringinn í síma 8635699
og getum brugðist við með mjög stuttum fyrirvara.