|
|
|
|
 |
|
|
Fréttir og Tilkynningar |
|
|
KRÓLI er sérhæft fyrirtæki með flotbryggjur og tilheyrandi búnað svo sem fingur, tenglastólpa og mælasnúrur fyrir rafmagn. “Królabryggjur” eru þegar í flestum hafna landsins. Fyrstu bryggjurnar voru settar upp á Þórshöfn á Langanesi fyrir uþb 30 árum. Í byrjun voru einingar 10 metrar á lengd og eigin þyngd uþb 10 tonn en undanfarin ár hefur framleiðslan færst yfir í stærri einingar bæði á lengd og breidd með eigin þyngd allt að 40 tonn. Í flestum tilvikum hefur Króli ehf sótt flotbryggjurnar til sænska fyrirtækisins SF Marina System AB ( www.sfmarina.se ) sem hefur verið leiðandi framleiðandi í hönnun og gerð flotbryggja og öldubrjóta um árabil en á því varð breyting við undirritun framleiðslu- og leyfissamnings við Loftorku í Borgarnesi ehf.
Bátaeigendur óska þess gjarnan að hafa eigin stæði við flotbryggju en fingur fyrir bása hefur Króli ehf sótt til norður-Svíþjóðar þar sem framleiðandinn er Rollytech AB. ( www.rollytech.se ) og að auku eru óskir að allir báta í viðlegu séu tengdir við landrafmagn en þær tengingar sækjum við til enska firmans Rolec Services Ltd (www.rolecserve.com).
Í flestu tilvikum er flotbryggjum lagt út með 19 - 38mm keðjum en undanfarið hefur aukist notkun á gúmístrengjum frá sænska fyrirtækinu SEAFLEX AB ( www.seaflex.se ) en búnaðurinn eru sterkir strengir úr gúmi með efniskjarna. SEAFLEX hefur sótt á einkum þar sem tæring er vandamál í höfnum.
Bestu kveðjur/ Króli ehf / Kristján Óli Hjaltason.
|
|   |
|
|
|
 |
|
 |
|